endurbaetur nytt_lan vedlanaflutningur yfirtaka_lana icon-play icon-pdf icon-checkmark at icon-bradabirgdagreidslumat icon-calculator icon-chevon icon-clock icon-close icon-contract icon-counseling icon-credit-evaluation icon-external icon-external icon-felagasamtok icon-finnaleiguhus icon-hammer icon-happy icon-home icon-hus icon-info icon-info icon-lan icon-landlord icon-lock icon-menu-cat icon-menuburger icon-money icon-nursing-home icon-phone icon-question icon-quick icon-report icon-search icon-close icon-towns icon-unhappy icon-variables icon-vaxtatafla icon-velta icon-hammer house-icon simple-arrow-right simple-arrow-left file-icon ILS_houses-outline icon_email
ILS Logo Mobile
ILS Logo
  • Um okkur
    Um okkur
    Fara í næsta flokk
    • Lög og reglugerðir
    • Skýrslur
    • Lánshæfismat
    • Áætlanir
    • Fyrirvari
    • Þjónustulögfræðingar
    • Fréttir
    • Upplýsingaöryggi

  • Fjárfestar
    Fjárfestar
    Fara framhjá aðalvalmynd
    • Lánshæfismat
    • Skýrslur
    • Áætlanir
    • Prospectus
    • Húsbréf

Húsnæðismarkaðurinn - Mánaðarskýrsla desember 2019

Hlusta

Skrifað þann 19.12.2019

Ný og uppfærð gögn benda til minni samdráttar á árinu
Kaupsamningum um stakar eignir á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað á fyrstu 10 mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra. Ný gögn gefa hins vegar til kynna að samdrátturinn sé minni en áður var talið. Þá er veltan á bakvið þau viðskipti á íbúðamarkaði það sem af er ári komin á par við sama tímabil í fyrra að nafnvirði á landinu öllu en dregst saman um 1% á höfuðborgarsvæðinu en eykst um 1% í nágrannasveitarfélögum og á Akureyri. Fasteignamarkaðurinn virðist því heldur líflegri í haust heldur en í lok sumars miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs.Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs.

Íbúum hefur fjölgað langmest á Suðurnesjum frá árinu 2008 eða um rúmlega 30%. Fjölgun íbúða hefur einnig hvergi verið meiri á sama tíma eða um 10% sem er þó ekki nóg til þess að halda í við íbúafjölgun.

Flatari dreifing í leigufjárhæðum
Leigufjárhæð hefur verið að jafnaði um 182 þúsund kr. á mánuði sé miðað við miðgildi þinglýstra samninga það sem af er ári. Í níu af hverjum tíu þinglýstum leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu liggur leigufjárhæð á bilinu 99.000 – 277.000 krónur á mánuði en til samanburðar var sambærilegt bil 94.000 – 284.000 árið 2018 og 72.000 – 216.000 kr. árið 2013 á föstu verðlagi.

Októbermánuður stærsti einstaki mánuður frá upphafi í hreinum nýjum íbúðalánum heimilanna
Hrein ný íbúðalán til heimila námu alls um 22,2 milljörðum króna í október síðastliðnum og mældust 36% hærri en í september og 44% hærri en í október í fyrra. Frá sama tímabili í fyrra hafa heildarfjárhæðir nýrra íbúðalána heimilanna, að frádregnum umfram- og uppgreiðslum eldri lána, aukist um 1,3% að nafnvirði.

Samsetning lána hefur tekið stakkaskiptum því óverðtryggð lánhafa vaxið um nær 30% á milli ára en á móti vegur að hrein ný verðtryggð lán drógust saman um 37% á verðlagi hvors árs. Þá virðist hlutdeild lífeyrissjóða á íbúðalánamarkaði hafa aukist lítillega.

Útlánavöxtinn í októbermánuði má að mestu leyti rekja til mikillar aukningar í hreinum nýjum óverðtryggðum útlánum lífeyrissjóðanna. Ástæður  þeirrar  aukningar er þó ekki hægt að rekja beint til aukinnar aðsóknar til nýrra lána lífeyrissjóðanna í októbermánuði einum og sér heldur þess að eitthvað hefur verið um að lífeyrissjóðir hafi gert átak í því að hreinsa upp í þeim umsóknarstöflum sem myndast höfðu frá því í sumar/haust. Því er hér fyrst og fremst um að ræða einskiptisaðgerðir ákveðinna stórra lífeyrissjóða en ekki stökkbreytingar í umsóknum nýrra lána.

Velta í byggingariðnaði heldur áfram að vaxa
Mikill vöxtur mældist í veltu fyrirtækja í byggingariðnaði árin 2015 og 2016 og á tímabili var 12 mánaða aukning veltu á raunvirði allt að 68%. Á síðasta VSK-tímabili sem birtar veltutölur ná til (júlí-ágúst 2019) nam 12 mánaða aukning veltu hins vegar um 2% á raunvirði.

Heildar útistandandi lán byggingargeirans í bankakerfinu hafa farið áfram vaxandi allt frá miðju ári 2014, en 12 mánaða vöxtur frá október 2018 til 2019 mælist um 19,3% samanborið við 0,9% vöxt hjá atvinnufyrirtækjum alls. Mögulega er það til marks um ágætt aðgengi fyrirtækja í byggingariðnaði að fjármagni.

Skýrsluna má lesa í heild sinni hér.
  • Þjónustuver ÍLS
  • Senda erindi

Þjónustuver ÍLS

Fáðu beint samband við þjónustufulltrúa og mínar síður
Hringdu í síma 569 6900 eða fáðu beint netsamband við þjónustufulltrúa.

Opnunartími þjónustuvers er milli 09:00 – 16:00 alla virka daga.
Einnig er hægt að skoða stöðu lána á mínum síðum.

  • 569 6900
    09:00 – 16:00
  • Hefja netspjall

Láttu í þér heyra. Sendu okkur fyrirspurn, ábendingu, hrós eða kvörtun hér á vefnum.

Rusl-vörn


Þessi síða notar vafrakökur

Lesa meira