endurbaetur nytt_lan vedlanaflutningur yfirtaka_lana icon-play icon-pdf icon-checkmark at icon-bradabirgdagreidslumat icon-calculator icon-chevon icon-clock icon-close icon-contract icon-counseling icon-credit-evaluation icon-external icon-external icon-felagasamtok icon-finnaleiguhus icon-hammer icon-happy icon-home icon-hus icon-info icon-info icon-lan icon-landlord icon-lock icon-menu-cat icon-menuburger icon-money icon-nursing-home icon-phone icon-question icon-quick icon-report icon-search icon-close icon-towns icon-unhappy icon-variables icon-vaxtatafla icon-velta icon-hammer house-icon simple-arrow-right simple-arrow-left file-icon ILS_houses-outline icon_email
ILS Logo Mobile
ILS Logo
  • Um okkur
    Um okkur
    Fara í næsta flokk
    • Lög og reglugerðir
    • Skýrslur
    • Lánshæfismat
    • Áætlanir
    • Fyrirvari
    • Þjónustulögfræðingar
    • Fréttir
    • Upplýsingaöryggi

  • Fjárfestar
    Fjárfestar
    Fara framhjá aðalvalmynd
    • Lánshæfismat
    • Skýrslur
    • Áætlanir
    • Prospectus
    • Húsbréf

Húsnæðismarkaðurinn - Mánaðarskýrsla nóvember 2018

Hlusta

Skrifað þann 13.11.2018

Frá og með júlí á síðasta ári hefur 12 mánaða hækkun sérbýlis á höfuðborgarsvæðinu verið meiri en 12 mánaða hækkun fjölbýlis. Í september var 12 mánaða hækkun sérbýlis á höfuðborgarsvæðinu 4,4% og fjölbýlis 3,4%. Íbúðir í sérbýli eru nú svipað lengi á sölu eins og íbúðir í fjölbýli en á undanförnum árum hefur að jafnaði tekið lengri tíma að selja sérbýli en fjölbýli. Auglýstum íbúðum í fjölbýli hefur fjölgað meira en auglýstum íbúðum í sérbýli undanfarin misseri. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs.

Fermetraverð leigu í 101 Reykjavík um 3.000 krónur

Leiguverð í þinglýstum leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 6,1% milli september 2017 og sama mánaðar í ár. Í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins hækkaði leiguverð um 12,9% á sama tímabili og um 14,5% annars staðar á landsbyggðinni. 101 Reykjavík er það póstnúmer þar sem leiguverð í þinglýstum leigusamningum er hæst eða um 3.000 krónur á fermetrann.

Rekstrartekjur í byggingariðnaði um 360 milljarðar í fyrra

Afkoma byggingariðnaðarins hefur batnað hratt á undanförnum árum. Í fyrra voru rekstrartekjur byggingariðnaðarins orðnar svipaðar og árið 2005 á núvirði eða um 360 milljarðar króna. Hagnaður fyrirtækja í byggingariðnaði fyrir fjármagnsliði var 41 milljarður króna í fyrra sem er tvöfalt meira en árið 2015. Sem hlutfall af rekstrartekjum er hagnaður fyrir fjármagnsliði nú hærri í byggingariðnaði en öðrum greinum hagkerfisins en var lægri árin 2009-2015.
 

Húsnæðismarkaðurinn - mánaðarskýrsla nóvember 2018
  • Þjónustuver ÍLS
  • Senda erindi

Þjónustuver ÍLS

Fáðu beint samband við þjónustufulltrúa og mínar síður
Hringdu í síma 569 6900 eða fáðu beint netsamband við þjónustufulltrúa.

Opnunartími þjónustuvers er milli 09:00 – 16:00 alla virka daga.
Einnig er hægt að skoða stöðu lána á mínum síðum.

  • 569 6900
    09:00 – 16:00
  • Hefja netspjall

Láttu í þér heyra. Sendu okkur fyrirspurn, ábendingu, hrós eða kvörtun hér á vefnum.

Rusl-vörn


Þessi síða notar vafrakökur

Lesa meira