endurbaetur nytt_lan vedlanaflutningur yfirtaka_lana icon-play icon-pdf icon-checkmark at icon-bradabirgdagreidslumat icon-calculator icon-chevon icon-clock icon-close icon-contract icon-counseling icon-credit-evaluation icon-external icon-external icon-felagasamtok icon-finnaleiguhus icon-hammer icon-happy icon-home icon-hus icon-info icon-info icon-lan icon-landlord icon-lock icon-menu-cat icon-menuburger icon-money icon-nursing-home icon-phone icon-question icon-quick icon-report icon-search icon-close icon-towns icon-unhappy icon-variables icon-vaxtatafla icon-velta icon-hammer house-icon simple-arrow-right simple-arrow-left file-icon ILS_houses-outline icon_email
ILS Logo Mobile
ILS Logo
  • Um okkur
    Um okkur
    Fara í næsta flokk
    • Lög og reglugerðir
    • Skýrslur
    • Lánshæfismat
    • Áætlanir
    • Fyrirvari
    • Þjónustulögfræðingar
    • Fréttir
    • Upplýsingaöryggi

  • Fjárfestar
    Fjárfestar
    Fara framhjá aðalvalmynd
    • Lánshæfismat
    • Skýrslur
    • Áætlanir
    • Prospectus
    • Húsbréf

Tilraunaverkefni í húsnæðismálum á landsbyggðinni

Hlusta

Skrifað þann 10.09.2018

Íbúðalánasjóður hefur nú auglýst eftir sveitarfélögum á landsbyggðinni til samstarfs vegna tilraunaverkefnis á vegum sjóðsins. 

Markmið verkefnisins er að leita leiða til þess að bregðast við þeim mikla húsnæðisvanda sem ríkir víðsvegar á landsbyggðinni, m.a. vegna óvirks íbúða- og leigumarkaðar og skorts á viðunandi íbúðarhúsnæði.

Horft er til þess að 2-4 sveitarfélög taki þátt í tilraunaverkefninu og að verkefnið nái að fanga mismunandi áskoranir á ólíkum landsvæðum. Þannig geta þær lausnir sem verkefninu er ætlað að móta nýst á sem breiðustum grunni.

Verkefnið tekur mið af stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar sem og stefnumótandi byggðaáætlun sem samþykkt var á Alþingi þann 11. júní 2018. Í byggðaáætlun er m.a. kveðið á um markmið um fjölgun íbúða á svæðum þar sem skortur á hentugu íbúðarhúsnæði hamlar uppbyggingu í sveitarfélaginu.

Húsnæðisáætlun sveitarfélagsins er grundvallarforsenda fyrir þátttöku í verkefninu. Hafi sveitarfélagið ekki þegar unnið slíka áætlun og skilað til Íbúðalánasjóðs þarf það að hafa til þess vilja og getu að ljúka við gerð hennar.

Þau sveitarfélög sem óska eftir að taka þátt í verkefninu eru beðin um að hafa samband við Sigrúnu Ástu Magnúsdóttur, deildarstjóra á húsnæðissviði Íbúðalánasjóðs, á netfangið sigrun@ils.is fyrir 30. september 2018.

Sjá nánar hér
  • Þjónustuver ÍLS
  • Senda erindi

Þjónustuver ÍLS

Fáðu beint samband við þjónustufulltrúa og mínar síður
Hringdu í síma 569 6900 eða fáðu beint netsamband við þjónustufulltrúa.

Opnunartími þjónustuvers er milli 09:00 – 16:00 alla virka daga.
Einnig er hægt að skoða stöðu lána á mínum síðum.

  • 569 6900
    09:00 – 16:00
  • Hefja netspjall

Láttu í þér heyra. Sendu okkur fyrirspurn, ábendingu, hrós eða kvörtun hér á vefnum.

Rusl-vörn


Þessi síða notar vafrakökur

Lesa meira