endurbaetur nytt_lan vedlanaflutningur yfirtaka_lana icon-play icon-pdf icon-checkmark at icon-bradabirgdagreidslumat icon-calculator icon-chevon icon-clock icon-close icon-contract icon-counseling icon-credit-evaluation icon-external icon-external icon-felagasamtok icon-finnaleiguhus icon-hammer icon-happy icon-home icon-hus icon-info icon-info icon-lan icon-landlord icon-lock icon-menu-cat icon-menuburger icon-money icon-nursing-home icon-phone icon-question icon-quick icon-report icon-search icon-close icon-towns icon-unhappy icon-variables icon-vaxtatafla icon-velta icon-hammer house-icon simple-arrow-right simple-arrow-left file-icon ILS_houses-outline icon_email
ILS Logo Mobile
ILS Logo
  • Um okkur
    Um okkur
    Fara í næsta flokk
    • Lög og reglugerðir
    • Skýrslur
    • Lánshæfismat
    • Áætlanir
    • Fyrirvari
    • Þjónustulögfræðingar
    • Fréttir
    • Upplýsingaöryggi

  • Fjárfestar
    Fjárfestar
    Fara framhjá aðalvalmynd
    • Lánshæfismat
    • Skýrslur
    • Áætlanir
    • Prospectus
    • Húsbréf

Húsnæðisáætlanir munu stuðla að stöðugleika

Hlusta

Skrifað þann 18.10.2017



Skortur er á íbúðarhúsnæði um allt land en vandinn er mismunandi eftir landsvæðum. Á meðan ör fólksfjölgun og hæg uppbygging hefur valdið skorti á höfuðborgarsvæðinu, er vandinn á landsbyggðinni víða sá að markaðsverð húsnæðis er undir byggingarkostnaði. Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga eru tæki til að koma í veg fyrir að ástand á borð við það sem nú er á húsnæðismarkaði skapist aftur.

Þetta er á meðal þess sem fram kom í erindi Sigrúnar Ástu Magnúsdóttur, verkefnastjóra húsnæðisáætlana hjá Íbúðalánasjóði, á Húsnæðisþingi sem haldið var á mánudag.

Þúsundir ungs fólks fastar í foreldrahúsum

Ísland hefur gengið í gegnum sveiflur á húsnæðismarkaði. Tiltölulega stórir árgangar ungs fólks hafa komið inn á fasteignamarkað á undanförnum árum á sama tíma og nýbyggingar hafa ekki verið færri síðan á 6. áratugnum. Um þessar mundir eru búa um 20.000 manns á aldrinum 20-29 ára í foreldrahúsum og hefur sá fjöldi farið vaxandi.



Fjöldi íbúa á hverja íbúð hér á landi hefur hækkað undanfarin ár á meðan hann hefur almennt farið lækkandi á hinum Norðurlöndunum. Í dag eru um 2,5 íbúar í hverri íbúð á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndum eru um 2 íbúar í hverri íbúð.

1% íbúða á höfuðborgarsvæðinu í stöðugri leigu til ferðamanna

Hluti húsnæðisvandans felst í aukinni skammtímaleigu íbúða til ferðamanna. Í erindi Sigrúnar kom fram að um 1,2% íbúða á höfuðborgarsvæðinu hafa verið í leigu á Airbnb í 180 daga eða fleiri á síðustu 12 mánuðum. Staðan er öðruvísi á mörgum öðrum landsvæðum þar sem minna er um að íbúðir séu í svo mikilli útleigu á Airbnb.

Allir hafi aðgengi að húsnæði við hæfi

Flest sveitarfélög á landinu vinna nú að gerð húsnæðisáætlana í samstarfi við Íbúðalánasjóð. Markmiðið með húsnæðisáætlunum er að tryggja að fjölgun íbúða í einstökum sveitarfélögum og á landinu öllu sé í takt við mannfjöldaspár og breyttar fjölskyldugerðir. Með þeim hætti er gengið úr skugga um að allir hafi aðgang að öruggu húsnæði við hæfi.

48 sveitarfélög hafa nú hafið vinnu við húsnæðisáætlun og eru 15 þeirra ýmist langt komin eða hafa birt áætlun. Sem dæmi um afrakstur vinnunnar má nefna að sveitarfélögin á Suðurnesjum gera ráð fyrir samtals 1.000 nýjum íbúðum á árunum 2017-2021.

Mikilvægt að greina vandann nákvæmlega

Sigrún Ásta Magnúsdóttir, verkefnastjóri húsnæðisáætlana: „Það er mjög ánægjulegt að sjá heilt landssvæði takast á við þær miklu áskoranir sem munu fylgja ef spá um mikla mannfjöldaaukningu ganga eftir, en öll sveitarfélögin á Suðurnesjunum eru nú á lokametrunum við gerð sinnar húsnæðisáætlunar.

Annar vandi blasir hins vegar við á landsbyggðinni þar sem á mörgum landssvæðum hefur nánast ekkert verið byggt svo árum og jafnvel áratugum skiptir. Það er mikilvægt að við greinum þann vanda með nákvæmum hætti eftir ólíkum landssvæðum og þar eru húsnæðisáætlanir sveitarfélaga lykilþáttur.“
 
Kynning Sigrúnar frá þinginu
  • Þjónustuver ÍLS
  • Senda erindi

Þjónustuver ÍLS

Fáðu beint samband við þjónustufulltrúa og mínar síður
Hringdu í síma 569 6900 eða fáðu beint netsamband við þjónustufulltrúa.

Opnunartími þjónustuvers er milli 09:00 – 16:00 alla virka daga.
Einnig er hægt að skoða stöðu lána á mínum síðum.

  • 569 6900
    09:00 – 16:00
  • Hefja netspjall

Láttu í þér heyra. Sendu okkur fyrirspurn, ábendingu, hrós eða kvörtun hér á vefnum.

Rusl-vörn


Þessi síða notar vafrakökur

Lesa meira