endurbaetur nytt_lan vedlanaflutningur yfirtaka_lana icon-play icon-pdf icon-checkmark at icon-bradabirgdagreidslumat icon-calculator icon-chevon icon-clock icon-close icon-contract icon-counseling icon-credit-evaluation icon-external icon-external icon-felagasamtok icon-finnaleiguhus icon-hammer icon-happy icon-home icon-hus icon-info icon-info icon-lan icon-landlord icon-lock icon-menu-cat icon-menuburger icon-money icon-nursing-home icon-phone icon-question icon-quick icon-report icon-search icon-close icon-towns icon-unhappy icon-variables icon-vaxtatafla icon-velta icon-hammer house-icon simple-arrow-right simple-arrow-left file-icon ILS_houses-outline icon_email
ILS Logo Mobile
ILS Logo
  • Um okkur
    Um okkur
    Fara í næsta flokk
    • Lög og reglugerðir
    • Skýrslur
    • Lánshæfismat
    • Áætlanir
    • Fyrirvari
    • Þjónustulögfræðingar
    • Fréttir
    • Upplýsingaöryggi

  • Fjárfestar
    Fjárfestar
    Fara framhjá aðalvalmynd
    • Lánshæfismat
    • Skýrslur
    • Áætlanir
    • Prospectus
    • Húsbréf

Almennar íbúðir - opið fyrir umsóknir um stofnframlög

Hlusta

Skrifað þann 29.09.2017

Auglýst er eftir umsóknum um stofnframlög ríkisins til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum skv. lögum nr. 52/2016 og reglugerð nr. 555/2016.

Markmið laga um almennar íbúðir er að bæta húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga, sem eru undir tekju- og eignamörkum við upphaf leigu, með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi leiguhúsnæði og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda.

Stofnframlög eru veitt til byggingar og kaupa á almennum íbúðum til að stuðla að því að í boði verði leiguíbúðir á viðráðanlegu verði fyrir þá sem þurfa á því að halda, þ.m.t. fyrir námsmenn, ungt fólk, aldraða og fatlaða.

Við mat á umsóknum er lögð sérstök áhersla á eftirfarandi þætti:
• Nýbyggingar og fjölgun leiguíbúða.
• Íbúðir á svæðum þar sem þörf er fyrir leiguíbúðir fyrir leigjendur undir tekju- og eignamörkum.

Auk þess verður áhersla á:
• Hagkvæmar íbúðir hvað stærð og herbergjafjölda varðar sbr. viðmiðunarstærðir.
• Hagkvæmar aðferðir við íbúðabyggingar í því skyni að lækka byggingarkostnað.
• Hugvitsamlegar lausnir og góða hönnun.
• Íbúðir sem uppfylla þarfir íbúa á hverju svæði.
• Íbúðir sem uppfylla mismunandi þarfir ólíkra hópa.
• Að stuðla að fjölbreyttri samsetningu íbúa og félagslegri blöndun.
Viðmiðunarstærðir
Við úthlutun verður horft til þess að íbúðir séu að jafnaði ekki stærri en eftirfarandi tafla segir til um:

Fjöldi herbergja Hámarksstærðir m.v. herbergjafjölda

Einstaklingsíbúð   50 m2
2ja herbergja íbúð 60 m2
3ja herbergja íbúð 80 m2
4ra herbergja íbúð 95 m2
5 herbergja íbúð  110 m2

Fjárhæð til úthlutunar í síðari úthlutun ársins 2017 er að hámarki 1.000 milljónir.

Nauðsynlegt er að sækja jafnframt um stofnframlag hjá því sveitarfélagi þar sem viðkomandi íbúð er staðsett. og er samþykki sveitarfélagsins eitt af skilyrðum fyrir veitingu stofnframlags ríkisins.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi á heimasíðu Íbúðalánasjóðs, www.ils.is. Umsóknarfrestur er til og með 31. október 2017. Umsókn sem berst eftir að umsóknarfrestur rennur út verður ekki tekin til umfjöllunar.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Íbúðalánasjóðs, www.ils.is.

Sækja um stofnframlög

Umsóknarfrestur:
31. október 2017
  • Þjónustuver ÍLS
  • Senda erindi

Þjónustuver ÍLS

Fáðu beint samband við þjónustufulltrúa og mínar síður
Hringdu í síma 569 6900 eða fáðu beint netsamband við þjónustufulltrúa.

Opnunartími þjónustuvers er milli 09:00 – 16:00 alla virka daga.
Einnig er hægt að skoða stöðu lána á mínum síðum.

  • 569 6900
    09:00 – 16:00
  • Hefja netspjall

Láttu í þér heyra. Sendu okkur fyrirspurn, ábendingu, hrós eða kvörtun hér á vefnum.

Rusl-vörn


Þessi síða notar vafrakökur

Lesa meira