endurbaetur nytt_lan vedlanaflutningur yfirtaka_lana icon-play icon-pdf icon-checkmark at icon-bradabirgdagreidslumat icon-calculator icon-chevon icon-clock icon-close icon-contract icon-counseling icon-credit-evaluation icon-external icon-external icon-felagasamtok icon-finnaleiguhus icon-hammer icon-happy icon-home icon-hus icon-info icon-info icon-lan icon-landlord icon-lock icon-menu-cat icon-menuburger icon-money icon-nursing-home icon-phone icon-question icon-quick icon-report icon-search icon-close icon-towns icon-unhappy icon-variables icon-vaxtatafla icon-velta icon-hammer house-icon simple-arrow-right simple-arrow-left file-icon ILS_houses-outline icon_email
ILS Logo Mobile
ILS Logo
  • Um okkur
    Um okkur
    Fara í næsta flokk
    • Lög og reglugerðir
    • Skýrslur
    • Lánshæfismat
    • Áætlanir
    • Fyrirvari
    • Þjónustulögfræðingar
    • Fréttir
    • Upplýsingaöryggi

  • Fjárfestar
    Fjárfestar
    Fara framhjá aðalvalmynd
    • Lánshæfismat
    • Skýrslur
    • Áætlanir
    • Prospectus
    • Húsbréf

Hagdeild ÍLS: Íbúðatalning SI varpar ljósi á mikilvægi bættrar áætlanagerðar

Hlusta

Skrifað þann 22.03.2017

Talning Samtaka iðnaðarins á íbúðum í byggingu, sem kynnt var í fréttaskýringaþættinum Kastljósi í gærkvöldi, sýnir að spár síðustu ára um fjölda nýbygginga hafa ekki gengið eftir. Byrjað hefur verið að byggja 438 færri íbúðir á höfuðborgarsvæðinu í ár heldur samtökin spáðu fyrir ári síðan. Ein helsta skýringin er talin vera sú að langan tíma hefur tekið að koma sumum byggingarverkefnum af stað jafnvel þótt byggingarleyfi liggi fyrir.

Hagdeild Íbúðalánasjóðs telur að talning Samtaka iðnaðarins varpi ljósi á mikilvægi bættrar áætlanagerðar í húsnæðismálum hér á landi. Áætlunargerð í húsnæðismálum er eitt af nýjum hlutverkum Íbúðalánasjóðs en með nýlegum breytingum á lögum um húsnæðismál var sjóðnum falið að aðstoða sveitarfélög landsins við gerð húsnæðisáætlana. Hluti af þeirri vinnu er að spá fyrir um húsnæðisþörf á komandi árum og sýna fram á langtímaáætlanir um uppbyggingu húsnæðis. Í áætlununum er stuðst bæði við gögn um þróun eftirspurnar og ýmsa aðra þætti sem hafa áhrif á framgang uppbyggingar húsnæðis. Vonast er til þess að með því að deila upplýsingum og þekkingu milli sveitarfélaga megi koma í veg fyrir að sambærilegt ástand skapist í framtíðinni þar sem verulegur skortur er á húsnæði.

---
Sigrún Ásta Magnúsdóttir, sérfræðingur í hagdeild Íbúðalánasjóðs, segir niðurstöðurnar úr talningu Samtaka iðnaðarins sýna skýrt að áætlanagerð hafi verið ábótavant. Sveitarstjórnarmenn byggi ákvarðanir sínar um skipulag, úthlutanir lóða og uppbyggingu innviða á spám og afar mikilvægt sé að þær séu áreiðanlegar.

„Við sjáum að margt er athugavert við þróun framboðs á húsnæðismarkaði. Ekki eru byggðar nægilega margar íbúðir en einnig hafa aldrei verið byggðar jafn stórar íbúðir og á síðustu 5 árum. Þetta er á sama tíma og kallað er eftir hagkvæmari íbúðum sem fyrstu kaupendur og aðrir með lægri- og meðaltekur hafa efni á að kaupa eða leigja. Við teljum að bætt áætlanagerð þurfi að koma til og þeir sem taka ákvarðanir sem hafa áhrif á verð og framboð húsnæðis séu betur upplýstir. Áreiðanlegar upplýsingar um stöðu húsnæðismála í hverju sveitarfélagi fyrir sig og eftirspurn eftir húsnæði er lykilþáttur í því að stuðla að stöðugleika og sjá til þess að framboð húsnæðis mæti eftirspurn.“


Upplýsingar um talningu Samtaka iðnaðarins: http://www.si.is/frettasafn/ny-ibudatalning-si-og-spa
  • Þjónustuver ÍLS
  • Senda erindi

Þjónustuver ÍLS

Fáðu beint samband við þjónustufulltrúa og mínar síður
Hringdu í síma 569 6900 eða fáðu beint netsamband við þjónustufulltrúa.

Opnunartími þjónustuvers er milli 09:00 – 16:00 alla virka daga.
Einnig er hægt að skoða stöðu lána á mínum síðum.

  • 569 6900
    09:00 – 16:00
  • Hefja netspjall

Láttu í þér heyra. Sendu okkur fyrirspurn, ábendingu, hrós eða kvörtun hér á vefnum.

Rusl-vörn


Þessi síða notar vafrakökur

Lesa meira