endurbaetur nytt_lan vedlanaflutningur yfirtaka_lana icon-play icon-pdf icon-checkmark at icon-bradabirgdagreidslumat icon-calculator icon-chevon icon-clock icon-close icon-contract icon-counseling icon-credit-evaluation icon-external icon-external icon-felagasamtok icon-finnaleiguhus icon-hammer icon-happy icon-home icon-hus icon-info icon-info icon-lan icon-landlord icon-lock icon-menu-cat icon-menuburger icon-money icon-nursing-home icon-phone icon-question icon-quick icon-report icon-search icon-close icon-towns icon-unhappy icon-variables icon-vaxtatafla icon-velta icon-hammer house-icon simple-arrow-right simple-arrow-left file-icon ILS_houses-outline icon_email
ILS Logo Mobile
ILS Logo
  • Um okkur
    Um okkur
    Fara í næsta flokk
    • Lög og reglugerðir
    • Skýrslur
    • Lánshæfismat
    • Áætlanir
    • Fyrirvari
    • Þjónustulögfræðingar
    • Fréttir
    • Upplýsingaöryggi

  • Fjárfestar
    Fjárfestar
    Fara framhjá aðalvalmynd
    • Lánshæfismat
    • Skýrslur
    • Áætlanir
    • Prospectus
    • Húsbréf

Sala eignasafna - skráning

Hlusta

Skrifað þann 08.12.2015

Íbúðalánasjóður selur 504 fasteignir um land allt

Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að setja um 500 íbúðir úr eignasafni sjóðsins í opið söluferli. Um er að ræða þriðjung þeirra íbúða sem nú eru í eigu sjóðsins eða 504 íbúðir alls. Íbúðirnar eru um land allt og verða boðnar til sölu í 15 eignasöfnum. Verulegur hluti íbúðanna er í útleigu en hluti eignanna þarfnast lagfæringar.

Sala eignanna er í takti við markmið Íbúðalánasjóðs um að selja meirihluta fasteigna sjóðsins á þessu og næsta ári. Vonast sjóðurinn til að stuðla um leið að auknu framboði á íbúðarhúsnæði víða um land.

Eignasöfnin sem seld verða eru misjöfn að stærð og gerð. Samsetning eigna í hverju safni miðast við að hagkvæmt geti verið að reka um þær leigufélög og eru eignir í hverju þeirra að jafnaði í sama byggðarlagi. Ákveðið var að hafa hvert eignasafn hóflegt að stærð til þess að það sé á færi fleiri fjárfesta að bjóða í þau. Heimilt verður að bjóða í einstök eignasöfn eða fleiri saman.

Söluferlið hefst mánudaginn 14. desember nk. og munu áhugasamir fjárfestar þá geta nálgast ítarlega upplýsingaskýrslu um söluferlið og eignirnar á heimasíðu Íbúðalánasjóðs. Sama dag verður boðið til kynningarfundar sem haldinn verður í sal Grand hótel Reykjavík kl. 14:00. Þeir sem hyggjast sækja fundinn verða að skrá sig til þátttöku fyrir kl. 13 á mánudeginum. Skráning fer fram á heimasíðu Íbúðalánasjóðs undir tenglinum „Sala eignasafna – skráning á kynningarfund“. Á fundinum verður farið yfir söluferlið og fasteignasöfnunum lýst nánar.

Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs : „Að undanförnu hefur gengið vel að selja fasteignir sjóðsins til einstaklinga, leigufélaga og sveitarfélaga. Salan á þessum ríflega 500 fasteignum, sem nú verða seldar í opnu söluferli, er í samræmi við stefnu sjóðsins um að selja meirihluta fasteigna sjóðsins á þessu og næsta ári. Hlutverk Íbúðalánasjóðs er að lána til húsnæðiskaupa og stuðla að stöðugleika á húsnæðismarkaði en ekki að reka fasteignir í lengri tíma. Staða Íbúðalánasjóðs hefur batnað mikið á síðustu misserum en um leið sjáum við að staðan á húsnæðismarkaði er erfið fyrir marga. Íbúðalánasjóður hefur reynt að mæta þessu, m.a. með umfangsmikilli ráðgjöf við fasteignakaupendur enda býr starfsfólk okkar yfir mikilli þekkingu á fasteignalánum.“


Skráning á kynningarfund
  • Þjónustuver ÍLS
  • Senda erindi

Þjónustuver ÍLS

Fáðu beint samband við þjónustufulltrúa og mínar síður
Hringdu í síma 569 6900 eða fáðu beint netsamband við þjónustufulltrúa.

Opnunartími þjónustuvers er milli 09:00 – 16:00 alla virka daga.
Einnig er hægt að skoða stöðu lána á mínum síðum.

  • 569 6900
    09:00 – 16:00
  • Hefja netspjall

Láttu í þér heyra. Sendu okkur fyrirspurn, ábendingu, hrós eða kvörtun hér á vefnum.

Rusl-vörn


Þessi síða notar vafrakökur

Lesa meira