endurbaetur nytt_lan vedlanaflutningur yfirtaka_lana icon-play icon-pdf icon-checkmark at icon-bradabirgdagreidslumat icon-calculator icon-chevon icon-clock icon-close icon-contract icon-counseling icon-credit-evaluation icon-external icon-external icon-felagasamtok icon-finnaleiguhus icon-hammer icon-happy icon-home icon-hus icon-info icon-info icon-lan icon-landlord icon-lock icon-menu-cat icon-menuburger icon-money icon-nursing-home icon-phone icon-question icon-quick icon-report icon-search icon-close icon-towns icon-unhappy icon-variables icon-vaxtatafla icon-velta icon-hammer house-icon simple-arrow-right simple-arrow-left file-icon ILS_houses-outline icon_email
ILS Logo Mobile
ILS Logo
  • Um okkur
    Um okkur
    Fara í næsta flokk
    • Lög og reglugerðir
    • Skýrslur
    • Lánshæfismat
    • Áætlanir
    • Fyrirvari
    • Þjónustulögfræðingar
    • Fréttir
    • Upplýsingaöryggi

  • Fjárfestar
    Fjárfestar
    Fara framhjá aðalvalmynd
    • Lánshæfismat
    • Skýrslur
    • Áætlanir
    • Prospectus
    • Húsbréf

Ný stjórn Íbúðalánasjóðs

Hlusta

Skrifað þann 25.09.2013

Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað nýja stjórn Íbúðalánasjóðs. Formaður stjórnarinnar er Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir lögmaður og tekur hún við af Jóhanni Ársælssyni.
Samkvæmt breytingum á lögum um húsnæðismál frá júlí 2012 er nú gerð krafa um að forstjóri og stjórn sjóðsins standist kröfur Fjármálaeftirlitsins um hæfi.

Stjórn Íbúðalánasjóðs er skipuð eftirtöldum fulltrúum:
Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, lögmaður, formaður stjórnar.
Hrund Hafsteinsdóttir, lögmaður, varaformaður.
Haukur Ingibergsson, fv. forstjóri Þjóðskrár Íslands.
Kristrún Heimisdóttir, lektor í lögfræði við Háskólann á Akureyri.
Stefán Ólafsson, prófessor í félagsvísindadeild Háskóla Íslands.

 

Til vara:
Kristinn Dagur Gissurarson, viðskiptafræðingur.
Jóhann Birgisson, bankamaður.
Halldóra Hauksdóttir, lögfræðingur.
Margrét Rósa Sigurðardóttir, framhaldsskólakennari.
G. Valdimar Valdimarsson, kerfisfræðingur.


Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, lögmaður Land lögmenn
Ingibjörg útskrifaðist með meistaragráðu (LL.M) í alþjóða- og samanburðarlögfræði frá George Washington University Law School árið 2003. Ingibjörg fékk lögmannsréttindi hjá Lögmannafélagi Íslands árið 2000. Hún lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands vorið 1998. Ingibjörg er sjálfstætt starfandi lögmaður og einn af stofnendum og eigendum lögmannsstofunnar Land lögmenn. Sérsvið Ingibjargar eru m.a. alþjóðafjárfestingar og viðskiptasamningar, fríverslunarsamningar, aðstoð við sprotafyrirtæki, stjórnsýsluréttur og landbúnaðarlögfræði. Hún hafði yfirumsjón með lögfræðiráðgjöf hjá fjárfestingafélaginu IVC S.A. í Sviss og starfaði hjá fríverslunarsamningadeild EFTA í Genf. Ingibjörg starfaði áður sem deildarstjóri í landbúnaðarráðuneytinu og var fulltrúi hjá sýslumanninum á Seyðisfirði. Hún var auk þess stundakennari við Háskólann á Bifröst. Ingibjörg hefur setið í og stýrt fjölmörgum nefndum á vegum stjórnarráðsins frá árinu 1999.

Hrund Hafsteinsdóttir, lögmaður ETNA lögmannsstofu
Hrund lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1990 og er stofnandi ETNA lögfræðiþjónustu sem hefur starfsemi í Reykjavík og Brüssel með áherslu á alþjóðaviðskipti, milliríkjasamskipti, ESB rétt og ráðgjöf í opinberri stjórnsýslu. Hrund hefur starfað í alþjóðastofnunum í Brüssel í tíu ár, vann um tíma í utanríkisráðuneytinu og er héraðsdómslögmaður. Hún hefur setið í fjölda stjórna og nefnda, m.a. í stjórn Símans hf., í samkeppnisráði og í kjörstjórn vegna kirkjuþingskosninga.

Haukur Ingibergsson, fv. forstjóri Þjóðskrár Íslands
Haukur er með cand. mag. próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands 1973 og B.A. í sagnfræði og landafræði frá Háskóla Íslands 1970. Frá árinu 1986 hefur hann gegnt ýmsum stjórnunarstörfum í stjórnsýslunni, m.a. sem framkvæmdastjóri Bifreiðaeftirlits ríkisins, forstöðumaður Hagsýslu ríkisins, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu og forstjóri Þjóðskrár Íslands. Haukur hefur setið í fjölmörgum nefndum innan sem utan stjórnsýslunnar og stjórnum fyrirtækja, m.a. í stjórn Bifreiðaskoðunar Íslands hf., Stofnfisks hf., Íslenska járnblendifélagsins og háskólaráði Kennaraháskóla Íslands.

Kristrún Heimisdóttir, lektor í lögfræði við Háskólann á Akureyri
Kristrún er lektor í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Hún lauk kandídatsprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1998 og stundaði framhaldsnám í heimspeki við University College í Cork á Írlandi. Kristrún var skipuð lektor í lögfræði við Háskólann á Akureyri 2012. Hún var aðstoðarmaður efnahags- og viðskiptaráðherra 2010-2012, lögfræðilegur ráðgjafi félagsmálaráðherra 2009-2010 og aðstoðarmaður utanríkisráðherra 2007-2009. Kristrún var áður lögfræðingur hjá Lex lögmannsstofu 2006-2007, hjá Samtökum iðnaðarins 2001-2006, framkvæmdastjóri Reykjavíkurakademíunnar 1999-2001 og lögfræðingur hjá Umboðsmanni Alþingis 1998-1999. Hún var kennari við lagadeildir háskólanna á Íslandi meðfram öðrum störfum.

Stefán Ólafsson, prófessor við félagsvísindadeild Háskóla Íslands
Stefán er með doktorspróf í félags- og hagfræði frá Oxford (1982) og M.A. í félagsfræði frá University of Edinburgh (1976). Stefán hefur starfað við Háskóla Íslands allt frá árinu 1980 og gegnt þar kennslu og stjórnunarstörfum. Hann hefur skrifað margar  bækur og fjölda rannsóknar- og fræðigreina sem birst hafa bæði heima og erlendis. Stefán var formaður stjórnar Íslenska járnblendifélagsins 1992-2004, í stjórn Spalar hf. 1999 - 2004, formaður stjórnar Háskólabíós frá árinu 2000 og er nú formaður stjórnar Tryggingastofnunar ríkisins (frá 2007).

  • Þjónustuver ÍLS
  • Senda erindi

Þjónustuver ÍLS

Fáðu beint samband við þjónustufulltrúa og mínar síður
Hringdu í síma 569 6900 eða fáðu beint netsamband við þjónustufulltrúa.

Opnunartími þjónustuvers er milli 09:00 – 16:00 alla virka daga.
Einnig er hægt að skoða stöðu lána á mínum síðum.

  • 569 6900
    09:00 – 16:00
  • Hefja netspjall

Láttu í þér heyra. Sendu okkur fyrirspurn, ábendingu, hrós eða kvörtun hér á vefnum.

Rusl-vörn


Þessi síða notar vafrakökur

Lesa meira