endurbaetur nytt_lan vedlanaflutningur yfirtaka_lana icon-play icon-pdf icon-checkmark at icon-bradabirgdagreidslumat icon-calculator icon-chevon icon-clock icon-close icon-contract icon-counseling icon-credit-evaluation icon-external icon-external icon-felagasamtok icon-finnaleiguhus icon-hammer icon-happy icon-home icon-hus icon-info icon-info icon-lan icon-landlord icon-lock icon-menu-cat icon-menuburger icon-money icon-nursing-home icon-phone icon-question icon-quick icon-report icon-search icon-close icon-towns icon-unhappy icon-variables icon-vaxtatafla icon-velta icon-hammer house-icon simple-arrow-right simple-arrow-left file-icon ILS_houses-outline icon_email
ILS Logo Mobile
ILS Logo
  • Um okkur
    Um okkur
    Fara í næsta flokk
    • Lög og reglugerðir
    • Skýrslur
    • Lánshæfismat
    • Áætlanir
    • Fyrirvari
    • Þjónustulögfræðingar
    • Fréttir
    • Upplýsingaöryggi

  • Fjárfestar
    Fjárfestar
    Fara framhjá aðalvalmynd
    • Lánshæfismat
    • Skýrslur
    • Áætlanir
    • Prospectus
    • Húsbréf

Útlán 1 milljarður í maí

Hlusta

Skrifað þann 13.06.2013

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í maí 2013 námu einum milljarði króna, en þar af voru 530 milljónir króna vegna almennra lána. Til samanburðar námu almenn útlán í maí 2012 um 890 milljónum króna. Meðalfjárhæð almennra lána var 9,9 milljónir króna.
Ávöxtunarkrafa allra flokka íbúðabréfa lækkaði í maí. Nam lækkunin 9-31 punkti. Það sem af er ári hefur ávöxtunarkrafa flokks HFF14 hækkað um 1,54%, HFF24 um 0,21%, HFF34 um 0,19% og HFF44 lækkað um 0,02%.
Heildarvelta íbúðabréfa nam um 38,1 milljarði króna í maí samanborið við 28,3 milljarða í apríl 2013.
Greiðslur Íbúðalánasjóðs vegna íbúðabréfa og annarra skuldbindinga námu 670 milljónum króna í maí. Uppgreiðslur námu 1,3 milljörðum króna.

Þróun vanskila útlána
Í lok mánaðarins hafði hlutfall lána í vanskilum einstaklinga enn lækkað frá því að vanskil í lánasafni Íbúðalánasjóðs náðu hámarki í júlí síðastliðnum.
Í lok maí nam fjárhæð vanskila útlána til einstaklinga 4,8 milljörðum króna og var undirliggjandi lánavirði 84,5 milljarðar króna eða um 12,75% útlána sjóðsins til einstaklinga. Þetta samsvarar 0,29% lækkun frá fyrra mánuði og var undirliggjandi hlutfall lánafjárhæðar í vanskilum í lok maí 1,01% lægra en sama hlutfall í maí 2012. Heimili í vanskilum eru 4.519 og þar af eru 640 heimili með frystingu á lánum sínum. Alls voru því 8,96% þeirra heimila sem eru með fasteignalán sín hjá Íbúðalánasjóði með lánin í vanskilum í lok maí 2013.
Fjárhæð vanskila útlána til lögaðila nam alls 3,0 milljörðum króna og nam undirliggjandi lánavirði 31,6 milljörðum króna. Tengjast því vanskil um 21,35% lánafjárhæðar sjóðsins til lögaðila, sem samsvarar 1,09% lækkun frá fyrri mánuði og er 0,51% lægra hlutfall en í lok maí 2012.
Vanskil eða frystingar ná samtals til 14,33% lánasafnsins, en sambærilegt hlutfall í maí 2012 nam 15,24%.
Vanskil teljast hér lán í vanskilum umfram 90 daga vanskil og lán sem eru í frystingu.

Eignasafnið
Í lok maí átti Íbúðalánasjóður 2.509 fullnustueignir um land allt og hefur þeim fjölgað um 93 frá því í lok apríl. Rétt rúmlega helmingur fasteigna sjóðsins var áður í eigu byggingaraðila, fyrirtækja í leiguíbúðarekstri eða annarra lögaðila, en tæpur helmingur eignanna var áður í eigu einstaklinga.
Í útleigu voru 1.124 íbúðir um land allt. Langflestar þeirra eru leigðar til fjölskyldna og einstaklinga sem dvöldu í eignunum þegar Íbúðalánasjóður eignaðist þær. Sjóðurinn hefur einnig heimild til að leigja út eignir í almennri útleigu á svæðum þar sem skortur er á leiguhúsnæði.
Þá voru 286 íbúðir af fullnustueignum sjóðsins óíbúðarhæfar. Flestar þessara íbúða eru á byggingarstigi og því ekki fullbúnar en nokkur hluti þeirra er óíbúðarhæfur vegna aldurs og ástands. Óíbúðarhæfum íbúðum hefur fækkað nokkuð síðustu mánuði.
Í sölumeðferð voru 878 íbúðir, annað hvort komnar í sölu eða unnið er að söluskráningu þeirra. Í töflu hér til hliðar er yfirlit um staðsetningu eigna flokkað eftir landshlutum og nýtingu/ráðstöfun þeirra.
Frá ársbyrjun til maíloka seldi Íbúðalánasjóður 102 eignir. Á sama tíma í fyrra seldi sjóðurinn 46 eignir og hefur hann selt 677 eignir frá ársbyrjun 2008.
Af þeim 2.509 eignum sem Íbúðalánasjóður átti í lok maí hefur 2.080 eignum verið ráðstafað í útleigu, sölumeðferð eða annað. Þá biðu 429 eignir frekari greiningar. Margar þeirra eru á svæðum þar sem nokkurt offramboð er af eignum til sölu og/eða leigu.
  • Þjónustuver ÍLS
  • Senda erindi

Þjónustuver ÍLS

Fáðu beint samband við þjónustufulltrúa og mínar síður
Hringdu í síma 569 6900 eða fáðu beint netsamband við þjónustufulltrúa.

Opnunartími þjónustuvers er milli 09:00 – 16:00 alla virka daga.
Einnig er hægt að skoða stöðu lána á mínum síðum.

  • 569 6900
    09:00 – 16:00
  • Hefja netspjall

Láttu í þér heyra. Sendu okkur fyrirspurn, ábendingu, hrós eða kvörtun hér á vefnum.

Rusl-vörn


Þessi síða notar vafrakökur

Lesa meira