endurbaetur nytt_lan vedlanaflutningur yfirtaka_lana icon-play icon-pdf icon-checkmark at icon-bradabirgdagreidslumat icon-calculator icon-chevon icon-clock icon-close icon-contract icon-counseling icon-credit-evaluation icon-external icon-external icon-felagasamtok icon-finnaleiguhus icon-hammer icon-happy icon-home icon-hus icon-info icon-info icon-lan icon-landlord icon-lock icon-menu-cat icon-menuburger icon-money icon-nursing-home icon-phone icon-question icon-quick icon-report icon-search icon-close icon-towns icon-unhappy icon-variables icon-vaxtatafla icon-velta icon-hammer house-icon simple-arrow-right simple-arrow-left file-icon ILS_houses-outline icon_email
ILS Logo Mobile
ILS Logo
  • Um okkur
    Um okkur
    Fara í næsta flokk
    • Lög og reglugerðir
    • Skýrslur
    • Lánshæfismat
    • Áætlanir
    • Fyrirvari
    • Þjónustulögfræðingar
    • Fréttir
    • Upplýsingaöryggi

  • Fjárfestar
    Fjárfestar
    Fara framhjá aðalvalmynd
    • Lánshæfismat
    • Skýrslur
    • Áætlanir
    • Prospectus
    • Húsbréf

Útlán rúmur milljarður í febrúar

Hlusta

Skrifað þann 21.03.2013

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu 1.058 milljónum króna í febrúar en þar af voru um 755 milljónir króna vegna almennra lána. Til samanburðar námu almenn útlán í febrúar 2012 um 896 milljónum króna. Meðalfjárhæð almennra lána var 8,9 milljónir króna.
Matsfyrirtækið Moody´s breytti lánshæfismati Íbúðalánasjóðs í Ba1 úr Baa3 þann 20. febrúar sl. Jafnframt var horfum breytt úr neikvæðum í stöðugar.
Ávöxtunarkrafa allra flokka íbúðabréfa hækkaði í febrúar. Nam hækkunin 5-24 punktum.
Heildarvelta íbúðabréfa nam um 41,9 milljörðum króna í febrúar samanborið við 37,2 milljarða í janúar 2013.
Greiðslur Íbúðalánasjóðs vegna íbúðabréfa og annarra skuldbindinga námu rúmum 10,3 milljörðum króna í febrúar. Uppgreiðslur námu rúmum 1,8 milljörðum króna.
Þróun vanskila útlána
Í lok febrúar 2013 hafði hlutfall lána í vanskilum einstaklinga lækkað áttunda mánuðinn í röð frá því að vanskil í lánasafni Íbúðalánasjóðs náðu hámarki í júlí síðastliðnum.
Í lok febrúar 2013 nam fjárhæð lána einstaklinga í vanskilum tæpum 4,7 milljörðum króna og var undirliggjandi lánavirði 87,2 milljarðar króna eða um 13,2% útlána sjóðsins til einstaklinga. Þetta samsvarar 0,2% lækkun frá fyrra mánuði og var undirliggjandi hlutfall lánafjárhæðar í vanskilum í lok febrúar 0,36% lægra en sama hlutfall í febrúar 2012. Heimili í vanskilum eru 4.703 og þar af eru 606 heimili með frystingu á lánum sínum. Alls voru því 9,2% þeirra heimila sem eru með fasteignalán sín hjá Íbúðalánasjóði með lánin í vanskilum í lok febrúar 2013 (var 11,8% í febrúar 2012). Það er 2,6% lægra hlutfall heimila en í lok febrúar 2012.
Í lok febrúar nam fjárhæð vanskila útlána til lögaðila alls um 2,8 milljörðum króna og nam undirliggjandi lánavirði 32,9 milljörðum króna. Tengjast því vanskil um 22,4% lánafjárhæðar sjóðsins til lögaðila, sem samsvarar 0,2%% hækkun frá fyrri mánuði en er 1,2% lægra hlutfall en í lok febrúar 2012.
Vanskil eða frystingar ná samtals til 14,87% lánasafnsins, en sambærilegt hlutfall í janúar 2012 nam 15,42%.
Eignasafnið
Í lok febrúar sl. átti Íbúðalánasjóður 2.281 fullnustueign um land allt og hafði þeim fjölgað um 20 frá því í lok janúar. Rétt rúmlega helmingur fasteigna sjóðsins var áður í eigu byggingaraðila, fyrirtækja í leiguíbúðarekstri eða annarra lögaðila, eða 1.157 eignir. Í febrúar 2013 seldi sjóðurinn 13 eignir og 119 eignir að auki voru með samþykkt kauptilboð.
Í febrúarlok voru 938 íbúðir í útleigu um land allt. Þá voru 318 íbúðir óíbúðarhæfar og eru þær flestar á byggingarstigi og því ekki fullbúnar en hluti þeirra er óíbúðarhæfur vegna aldurs og ástands.
Í sölumeðferð voru 859 íbúðir, annað hvort komnar í sölu eða unnið er að söluskráningu þeirra.
Í töflu hér til hliðar er yfirlit yfir staðsetningu eigna eftir landshlutum og nýtingu/ráðstöfun þeirra.
Mestur hluti þeirra 938 íbúða sem eru í útleigu eru leigðar til fjölskyldna og einstaklinga sem dvöldu í eignunum þegar Íbúðalánasjóður eignaðist þær.
Sjóðurinn hefur einnig heimild til að leigja út eignir í almennri útleigu á þeim svæðum þar sem skortur er á leiguhúsnæði.
Þær íbúðir sem leigðar eru út í almennri útleigu eru auglýstar til leigu á mbl.is og fasteignir.is undir „íbúðir til leigu“ og er eingöngu hægt að sækja þar um leigu þeirra. Hægt er að skoða úthlutunarreglur á heimasíðu Íbúðalánasjóðs, ils.is.
Eignir sjóðsins eru leigðar út á markaðsverði og er miðað við sambærilegar eignir eftir staðsetningu, stærð, aldri o.fl..
Allar fasteignasölur í landinu geta tekið eignir Íbúðalánasjóðs í sölumeðferð en í gildi er samstarfssamningur við Félag fasteignasala um verklag við sölu eigna sjóðsins.
Íbúðalánasjóður átti 2.281 eign 28. febrúar sl. og hefur 1.855 af þeim eignum verið ráðstafað í útleigu, sölumeðferð eða annað. Þá biðu 426 eignir frekari greiningar. Margar þeirra eru á svæðum þar sem nokkurt offramboð er af eignum til sölu og/eða leigu.
Um síðustu mánaðamót hafði Íbúðalánasjóður selt 597 eignir frá upphafi árs 2008.
  • Þjónustuver ÍLS
  • Senda erindi

Þjónustuver ÍLS

Fáðu beint samband við þjónustufulltrúa og mínar síður
Hringdu í síma 569 6900 eða fáðu beint netsamband við þjónustufulltrúa.

Opnunartími þjónustuvers er milli 09:00 – 16:00 alla virka daga.
Einnig er hægt að skoða stöðu lána á mínum síðum.

  • 569 6900
    09:00 – 16:00
  • Hefja netspjall

Láttu í þér heyra. Sendu okkur fyrirspurn, ábendingu, hrós eða kvörtun hér á vefnum.

Rusl-vörn


Þessi síða notar vafrakökur

Lesa meira