endurbaetur nytt_lan vedlanaflutningur yfirtaka_lana icon-play icon-pdf icon-checkmark at icon-bradabirgdagreidslumat icon-calculator icon-chevon icon-clock icon-close icon-contract icon-counseling icon-credit-evaluation icon-external icon-external icon-felagasamtok icon-finnaleiguhus icon-hammer icon-happy icon-home icon-hus icon-info icon-info icon-lan icon-landlord icon-lock icon-menu-cat icon-menuburger icon-money icon-nursing-home icon-phone icon-question icon-quick icon-report icon-search icon-close icon-towns icon-unhappy icon-variables icon-vaxtatafla icon-velta icon-hammer house-icon simple-arrow-right simple-arrow-left file-icon ILS_houses-outline icon_email
ILS Logo Mobile
ILS Logo
  • Um okkur
    Um okkur
    Fara í næsta flokk
    • Lög og reglugerðir
    • Skýrslur
    • Lánshæfismat
    • Áætlanir
    • Fyrirvari
    • Þjónustulögfræðingar
    • Fréttir
    • Upplýsingaöryggi

  • Fjárfestar
    Fjárfestar
    Fara framhjá aðalvalmynd
    • Lánshæfismat
    • Skýrslur
    • Áætlanir
    • Prospectus
    • Húsbréf

Útlán tæpur milljarður í janúar

Hlusta

Skrifað þann 15.02.2013

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu 960 milljónum króna í janúar en þar af voru um 890 milljónir króna vegna almennra lána. Til samanburðar námu almenn útlán í janúar 2012 um 1,1 milljarði króna. Meðalfjárhæð almennra lána var 8,9 milljónir króna.
Stofnað hefur verið leigufélag um hluta af fasteignum sjóðsins og ber félagið heitið Klettur ehf. og verður fyrst um sinn í eigu Íbúðalánasjóðs. Leigufélagið yfirtekur eignarhald og rekstur 524 fasteigna Íbúðalánasjóðs um land allt frá og með 1. janúar 2013. Meirihluti eignanna er nú þegar í útleigu. Rekstur þess er sjálfstæður og hefur félaginu verið kosin stjórn. Félagið yfirtekur núgildandi leigusamninga í óbreyttri mynd. Stofnun leigufélagsins hefur tvö meginmarkmið. Annars vegar að losa um eignarhald Íbúðalánasjóðs á fasteignum og aðskilja rekstur þeirra frá rekstri sjóðsins. Hins vegar að koma til móts við þann vilja stjórnvalda að auka framboð á húsnæði til langtímaleigu.
Ávöxtunarkrafa flokka íbúðabréfa HFF24, HFF34 og HFF44 lækkaði í janúar. Nam lækkunin 19-22 punktum en ávöxtunarkrafa HFF14 hækkaði um 20 punkta.
Heildarvelta íbúðabréfa nam um 37,2 milljörðum króna í janúar samanborið við 23,3 milljarða í desember 2012.
Greiðslur Íbúðalánasjóðs vegna íbúðabréfa og annarra skuldbindinga námu rúmum 2,3 milljörðum króna í janúar. Uppgreiðslur námu um 1,5 milljörðum króna.


Þróun vanskila útlána

Í lok janúar 2013 hafði hlutfall lána í vanskilum einstaklinga lækkað sjötta mánuðinn í röð frá því að vanskil í lánasafni Íbúðalánasjóðs náðu hámarki í júlí síðastliðnum. Þetta er ánægjuleg þróun og vonandi vísbending um það sem koma skal.
Í lok janúar 2013 nam fjárhæð lána einstaklinga í vanskilum tæpum 4,9 milljörðum króna og er undirliggjandi lánavirði 88,5 milljarðar króna eða um 13,4% útlána sjóðsins til einstaklinga. Þetta samsvarar 0,1% lækkun frá fyrra mánuði og er undirliggjandi hlutfall lánafjárhæðar í vanskilum í lok janúar 0,02% hærra en sama hlutfall í janúar 2012. Heimili í vanskilum eru 4.752 og þar af eru 610 heimili með frystingu á lánum sínum. Alls voru því 9,2% þeirra heimila sem eru með fasteignalán sín hjá Íbúðalánasjóði með lánin í vanskilum í lok janúar 2013. Það er 0,2% lægra hlutfall heimila en í lok janúar 2012.
Í lok janúar nam fjárhæð vanskila útlána til lögaðila alls um 2,7 milljörðum króna og nam undirliggjandi lánavirði 32,8 milljörðum króna. Tengjast því vanskil um 22,2% lánafjárhæðar sjóðsins til lögaðila, sem samsvarar 1,9% hækkun frá fyrri mánuði en er 1,4% lægra hlutfall en í lok janúar 2012.
Vanskil eða frystingar ná samtals til 14,99% lánasafnsins, en sambærilegt hlutfall í janúar 2012 nam 15,26%.

Eignasafnið
Þann 31.01.2013 átti Íbúðalánasjóður 2.261 fullnustueignir um land allt  og hefur þeim fjölgað um 33 frá því 30.12.2012. Rétt rúmlega helmingur fasteigna sjóðsins voru áður í eigu byggingaraðila, fyrirtækja í leiguíbúðarrekstri eða annarra lögaðila, eða 1.155 eignir.
Þann 31.01.2013 voru 923 íbúð í útleigu um land allt.  Þá voru 321 íbúð   óíbúðarhæf og eru flestar þessara íbúða á byggingarstigi og því ekki fullbúnar en nokkur hluti þeirra er óíbúðarhæfur vegna aldurs og ástands.
Í sölumeðferð voru 826 íbúðir, annað hvort komnar í sölu eða unnið er að söluskráningu þeirra. Í töflu hér til hliðar er yfirlit yfir staðsetningu eigna flokkað eftir landshlutum og nýtingu/ráðstöfun þeirra.
Mestur hluti þeirra 923 íbúa sem eru í útleigu eru leigðar til fjölskyldna og einstaklinga sem dvöldu í eignunum þegar Íbúðalánasjóður eignaðist þær.
Sjóðurinn hefur einnig heimild til að leigja út eignir í almennri útleigu á þeim svæðum þar sem skortur er á leiguhúsnæði.
Þær íbúðir sem leigður út til almennrar útleigu eru auglýstar til leigu á mbl.is og fasteignir.is undir „íbúðir til eigu“ og er eingöngu hægt að sækja þar um leigu þeirra. Hægt er að skoða úthlutunarreglur á heimasíðu Íbúðalánasjóðs, ils.is.
Eignir sjóðsins eru leigðar út á markaðsverði og er miðað við sambærilegar eignir eftir staðsetningu, stærð, aldri og fleira.
Allar fasteignasölur í landinu geta tekið eignir Íbúðalánasjóðs í sölumeðferð en í gildi er samstarfssamningur við Félag fasteignasala um verklag við sölu eigna sjóðsins.
Af þeim 2.261 eignum sem Íbúðalánasjóður átti þann 31.01.2013  hefur 1.812 eignum verið ráðstafað í útleigu, sölumeðferð eða annað. Þá biðu 449 eignir frekari greiningar. Margar þeirra eru á svæðum þar sem er nokkurt offramboð af eignum til sölu og/eða leigu.

Þann 31.01.2013 hefur Íbúðalánasjóður selt 584 eignir frá áramótum 2007/2008.


  • Þjónustuver ÍLS
  • Senda erindi

Þjónustuver ÍLS

Fáðu beint samband við þjónustufulltrúa og mínar síður
Hringdu í síma 569 6900 eða fáðu beint netsamband við þjónustufulltrúa.

Opnunartími þjónustuvers er milli 09:00 – 16:00 alla virka daga.
Einnig er hægt að skoða stöðu lána á mínum síðum.

  • 569 6900
    09:00 – 16:00
  • Hefja netspjall

Láttu í þér heyra. Sendu okkur fyrirspurn, ábendingu, hrós eða kvörtun hér á vefnum.

Rusl-vörn


Þessi síða notar vafrakökur

Lesa meira