endurbaetur nytt_lan vedlanaflutningur yfirtaka_lana icon-play icon-pdf icon-checkmark at icon-bradabirgdagreidslumat icon-calculator icon-chevon icon-clock icon-close icon-contract icon-counseling icon-credit-evaluation icon-external icon-external icon-felagasamtok icon-finnaleiguhus icon-hammer icon-happy icon-home icon-hus icon-info icon-info icon-lan icon-landlord icon-lock icon-menu-cat icon-menuburger icon-money icon-nursing-home icon-phone icon-question icon-quick icon-report icon-search icon-close icon-towns icon-unhappy icon-variables icon-vaxtatafla icon-velta icon-hammer house-icon simple-arrow-right simple-arrow-left file-icon ILS_houses-outline icon_email
ILS Logo Mobile
ILS Logo
  • Um okkur
    Um okkur
    Fara í næsta flokk
    • Lög og reglugerðir
    • Skýrslur
    • Lánshæfismat
    • Áætlanir
    • Fyrirvari
    • Þjónustulögfræðingar
    • Fréttir
    • Upplýsingaöryggi

  • Fjárfestar
    Fjárfestar
    Fara framhjá aðalvalmynd
    • Lánshæfismat
    • Skýrslur
    • Áætlanir
    • Prospectus
    • Húsbréf

Útlán 1,9 milljarðar í júní

Hlusta

Skrifað þann 10.07.2012

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu tæpum 1,9 milljörðum króna í júní en þar af voru tæpir 1,3 milljarðar króna vegna almennra lána. Til samanburðar námu almenn útlán í júní 2011 um 1,7 milljörðum króna. Meðalútlán almennra lána voru um 10,3 milljónir króna í júní.  
Vísitala neysluverðs í júní 2012 hækkaði um 0,50% frá fyrra mánuði (hækkaði um 0,61% án húsnæðis). Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,4% og vísitalan án húsnæðis um 5,5%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,3% sem jafngildir 5,2% verðbólgu á ári.
Alls hefur Íbúðalánasjóður veitt 611 almenn íbúðalán frá áramótum í samanburði við 1.119 lán á sama tímabili í fyrra.
Ávöxtunarkrafa flokka íbúðabréfa HFF14, HFF24 og HFF34 hækkaði í júní. Nam hækkunin 4 – 30 punktum. Ávöxtunarkrafa flokks HFF44 lækkaði um 2 punkta frá fyrra mánuði. Frá áramótum hefur ávöxtunarkrafa allra flokka íbúðabréfa hækkað, HFF14 um 6,46%, krafa HFF24 um 0,71%, krafa HFF34 um 0,01% og krafa HFF44 um 0,05%.
Heildarvelta íbúðabréfa nam 51,2 milljörðum króna í júní samanborið við 58,2 milljarða í maí 2012.
Greiðslur Íbúðalánasjóðs vegna húsbréfa og annarra skuldbindinga námu tæpum 12,1 milljarði króna í júní. Uppgreiðslur námu um 1,5 milljörðum króna.
  • Þjónustuver ÍLS
  • Senda erindi

Þjónustuver ÍLS

Fáðu beint samband við þjónustufulltrúa og mínar síður
Hringdu í síma 569 6900 eða fáðu beint netsamband við þjónustufulltrúa.

Opnunartími þjónustuvers er milli 09:00 – 16:00 alla virka daga.
Einnig er hægt að skoða stöðu lána á mínum síðum.

  • 569 6900
    09:00 – 16:00
  • Hefja netspjall

Láttu í þér heyra. Sendu okkur fyrirspurn, ábendingu, hrós eða kvörtun hér á vefnum.

Rusl-vörn


Þessi síða notar vafrakökur

Lesa meira