endurbaetur nytt_lan vedlanaflutningur yfirtaka_lana icon-play icon-pdf icon-checkmark at icon-bradabirgdagreidslumat icon-calculator icon-chevon icon-clock icon-close icon-contract icon-counseling icon-credit-evaluation icon-external icon-external icon-felagasamtok icon-finnaleiguhus icon-hammer icon-happy icon-home icon-hus icon-info icon-info icon-lan icon-landlord icon-lock icon-menu-cat icon-menuburger icon-money icon-nursing-home icon-phone icon-question icon-quick icon-report icon-search icon-close icon-towns icon-unhappy icon-variables icon-vaxtatafla icon-velta icon-hammer house-icon simple-arrow-right simple-arrow-left file-icon ILS_houses-outline icon_email
ILS Logo Mobile
ILS Logo
  • Um okkur
    Um okkur
    Fara í næsta flokk
    • Lög og reglugerðir
    • Skýrslur
    • Lánshæfismat
    • Áætlanir
    • Fyrirvari
    • Þjónustulögfræðingar
    • Fréttir
    • Upplýsingaöryggi

  • Fjárfestar
    Fjárfestar
    Fara framhjá aðalvalmynd
    • Lánshæfismat
    • Skýrslur
    • Áætlanir
    • Prospectus
    • Húsbréf

Íbúðalánasjóður vegur á móti röskun á fasteignamarkaði

Hlusta

Skrifað þann 08.06.2012

• Frá hruni hefur Íbúðalánasjóður leyst til sín 2.380 íbúðir. 390 þeirra hafa verið seldar, þar af 96 á höfuðborgarsvæðinu. 1.990 íbúðir eru enn í eigu sjóðsins.
• Í 800 íbúðum búa einstaklingar eða fjölskyldur sem samið hafa við Íbúðalánasjóð um áframhaldandi búsetu og leigja nú íbúðirnar af sjóðnum.
• 270 íbúðir eru enn á byggingarstigi og 830 íbúðir standa auðar af ýmsum ástæðum. Markmið sjóðsins er að selja þessar eignir.
• Íbúðir í eigu sjóðsins verða hvorki seldar á undirverði né margar á sama tíma, heldur verða þær seldar jafnt og þétt á næstu árum á markaðsvirði til að varðveita verðmæti eignasafnsins og raska ekki fasteignamarkaði.
• Á hverju ári þarf sjóðurinn að greiða hátt í þrjú hundruð þúsund kr. í gjöld, tryggingar og orkukostnað að meðaltali af hverri tómri íbúð í eigu sjóðsins. Þá er ekki talin fjármögnun, viðhald, afskriftir og eignaumsjón.
• Íbúðalánasjóður vinnur nú að því að skrá 230 auðar íbúðir til sölu á fasteignamarkaði og að setja 80 íbúðir til viðbótar í útleigu.
• Útleiga íbúða er bæði til að hafa tekjur á móti kostnaði og til að draga úr því ójafnvægi á fasteignamarkaði sem 830 tómar íbúðir valda.
• Íbúðirnar eru víðsvegar um landið og koma þær ekki til leigu eða sölu á sama tíma.
• Sjóðurinn leggur mikla áherslu á sanngjarnt og gagnsætt ferli í öllum viðskiptum með eignir sjóðsins.
• Tilhögun á sölu fasteigna hefur verið skipulögð í samvinnu við Félag fasteignasala þar sem allir löggiltir fasteignasalar hafa tækifæri til að setja eignir sjóðsins á söluskrá.
• Leiguverð er ákvarðað út frá meðalleiguverði á hverju landsvæði. Upplýsingar um leiguverð eru fyrirliggjandi vegna samvinnuverkefnis ÍLS og Þjóðskrár þar sem um 12.000 þinglýstir leigusamningar hafa verið skráðir í leigusamningagrunn.
• Hver og ein leiguíbúð verður skráð með hefðbundnum hætti á mbl.is og fasteignir.is. Eignir sjóðsins eiga ekki að skera sig frá markaðinum að neinu leyti hvað varðar kynningu, skilmála eða leiguverð.
• Enginn sérstakur listi um þessar leiguíbúðir verður því birtur hjá Íbúðalánasjóði eða annars staðar, en nánari upplýsingar um úthlutunarreglur sjóðsins má finna á www.ils.is/ibudir-til-leigu/
  • Þjónustuver ÍLS
  • Senda erindi

Þjónustuver ÍLS

Fáðu beint samband við þjónustufulltrúa og mínar síður
Hringdu í síma 569 6900 eða fáðu beint netsamband við þjónustufulltrúa.

Opnunartími þjónustuvers er milli 09:00 – 16:00 alla virka daga.
Einnig er hægt að skoða stöðu lána á mínum síðum.

  • 569 6900
    09:00 – 16:00
  • Hefja netspjall

Láttu í þér heyra. Sendu okkur fyrirspurn, ábendingu, hrós eða kvörtun hér á vefnum.

Rusl-vörn


Þessi síða notar vafrakökur

Lesa meira